Kryfjum þetta...

Nú er ég búin að mæta tvisvar niður á Austurvöll á þessi mótmæli fyrir utan Alþingishúsið og síðan var ég aðeins fyrir utan stjórnarráðið í gær, en ég er nú ekki ein af þeim sem stendur þarna með potta og pönnur eða er grímuklædd.

Hinsvegar í gær þá vorum ég og Hjörleifur vinur minn að labba í kringum Alþingishúsið að sjá hvort við sæjum eitthvað af fólki sem við þekktum. Vorum líka ekki alveg með nýjustu tíðindi rétt fréttaflutt svo við vorum voða mikið að leita eftir að heyra hvað fólk væri eiginlega að mótmæla um. En þrátt fyrir að það versta sem ég gerði af mér niður á Austurvelli í gærkvöldi var að bölva hundaeigendum sem gerðu hundunum sínum það að vera með þá þarna í öllum látunum (viltu að hundurinn þinn tryllist og ærist út af látunum og eigi það á hættu að fá táragas eða piparúða í augun?) þá fékk ég nú samt úða beindann að mér... Fékk ekkert í augun eða á mig, því ég var líka tilbúin og búin að snúa mér við. En nóg um það.

Ég er með svona innbyggða reiknivél sem reiknar sirka meðalaldur á því svæði sem ég er stödd, eða, svo mætti segja. Meðalaldurinn þarna var ekki hár, en mér fannst flestir þarna vera á mínum aldri, og margir jafnvel talsvert yngri. Maður sér fyrir sér stereótýpu vandræðagemlinga sem heyra um átök niðri í bæ og drífa sig þangað með vasana fulla af grjóti, bara vegna þess að þarna er vettvangur til að vera með uppsteyt á móti lögreglunni. Ég held að margir þarna hafi ekki einu sinni verið með kosningarétt né vitað hvað málið snérist um til að byrja með. Ég sá líka bara hvað þetta var kjánalegt í gær. Mótmælendur voru búnir að færa sig til hægri við Alþingishúsið við hliðina á glerbúrinu og þar stóðu lögreglumenn með skildina alveg á fullu að reyna halda mótmælendunum frá, en svo ef maður labbaði fram fyrir húsið sást ekki ein lögregluhræða! Ef þið eruð svona harðkjarna mótmælendur hefðuð þið átt að taka eftir þessu og "þússt, brjótast inn eða eitthvað skiluru."

Mér finnst bara svo fyndið afhverju Sjálfstæðisflokkurinn er svona þrjóskur. Þetta land er lýðveldi sem þýðir að hér ríkir lýðræði. Geir forsætisráðherra segir að ef boðað yrði til kosninga strax þá yrði það hættulegt vegna þess að það ætti að leyfa þeirri stjórn sem nú situr að fá að klára að leysa úr þessu.

1. Þið eruð ekkert að leysa úr þessu.

2. Afhverju endilega þið?

3. Hér sést glögglega að þið vitið alveg að ef haldnar yrðu kosningar núna myndu þið tapa.

4. Þar af leiðandi sjáum við einnig augljóslega að þessvegna viljiði ekki að haldnar verði kosningar!

Frekja.

Þetta er lýðveldi og þá á lýðurinn að ráða hverju sinni. Þrátt fyrir að þið hafið verið kosin í síðustu kosningum þýðir ekki að þið eigið rétt á að sitja allt kjörtímabilið ef að það er SVONA augljóst að þjóðinn vill það ekki. Þá erum við ekki að tala um mikið lýðræði lengur, þá er stjórnin bara að þvinga okkur að vera undir henni áfram því að hún "getur" það því að hún er við stjórn!

Þetta minnir mig á grunnskóla...

Lúðinn sem kemur að nestinu sínu horfnu og sætinu sínu teknu (þjóðin): "Heyrðu fyrirgefðu, ég sat eiginlega hérna."

Hópurinn af vinsælu stelpunum sem hafa mastgersgráðu í tíkarskap: "Uhh, eiginlega ekki! Við sátum hérna í gær, og við ætlum að sitja hérna út þessa viku!"

 

En annars vill ég bara segja eitt: HLÍFIÐ HELVÍTIS HÚSINU!

Ég kom meira að segja sjálfri mér á óvart í gær þegar ég byrjaði að tuða um húsið. Ég og Anna kíktum sem sagt þarna um miðjan daginn í gær og áður en ég vissi var ég farin að tuða og tuða um hvað fólk væri að fara illa með húsið. Anna hló að mér, ég er litli arkitektinn hennar. Fyndið að þetta sé farið að gerast ósjálfrátt, að ég hugsi með þessu sjónarmiði. Ég meina, allir hafa sinn málstað og áhugamál og þá hljóta þeir að sjá heiminn samkvæmt því.

 

En samt án djóks, þetta hús var illa farið og vanrækt viðhaldslega séð, áður en þessi mótmæli byrjuðu. Það var krísa hvernig ætti að reyna að pússa það upp án þess að hreinlega rífa alla steina þangað til sæist í grind. Það má náttúrulega alls ekki þar sem þetta hús er merkilegur minnisvarði um þróun íslenskrar byggingalistar á 20. öld. Reyndar var ekki mikil byggingarlist fyrr en þá hvort sem er, þar sem við bjuggum í torfbæjum fram á 7. áratuginn. En þetta hús markar þau tímamót þegar við erum sem flest að rísa upp úr torfbæjunum og erum að fá sweitser hús hingað og steinhlaðin o.s.frv. Þess vegna má alls ekki eyðileggja það! Og ef það var í viðkvæmu ástandi fyrir þá má það nú ekki við því að það sé verið að grýta það og sprengja sprengjur upp við það!

 

Kæru samlandar, hlífum húsinu, grýtum alþingismennina!

 

neiokdjók. ég mátti til.

 

 Ætla að drífa mig í skólann núna.

 

Kveðja,

 

Aþena

 

Image7


mbl.is Lögreglumaður enn á sjúkrahúsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ester Rut Unnsteinsdóttir

Þú ert snillingur og ég segi bara, sammála þér - líka með húsið

knús frá litlu tengdamömmunni fyrir vestan

Ester Rut Unnsteinsdóttir, 3.2.2009 kl. 08:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband